|
Myndir
- Myndasíða 2
- Pallar sem fóru til Eyja
- Myndasíða 1
- Ástralía, Nýja-Sjáland, Thailand 5
- Ástralía, Nýja-Sjáland, Thailand 4
- Ástralía, Nýja-Sjáland, Thailand 3
- Ástralía, Nýja-Sjáland, Thailand 1
- Ástralía, Nýja-Sjáland, Thailand 2
- Ástralía, Nýja-Sjáland, Thailand 6
|
17.10.2007 16:25:18 / snorkstelpa
Jæja jæja... ákvað að blogga smá fyrst ég er nú bara heima að gera ekki neitt. Ég ligg bara heima með flensu, sem hefði ekki getað komið á verri tíma by the way, brjálað mikið af verkefnum í skólanum og eitthvað. Við fengum einmitt internetið í morgun, vei! Eftir aðeins 2 mánaða baráttu Af mér er allt annars bara ágætt að frétta, er á fullu í háskólanum að læra stjórnmálafræði sem er bara fínt fyrir utan gríðarlegt álag og mikla vinnu. Ég skil ekki alveg hvað maður var alltaf að kvarta í menntaskóla! Er reyndar á frekar leiðinlegum punkti akkurat núna, er að fá stóran skammt af skólaleiða og finnst einhvern veginn ekkert vera að ganga upp hjá mér... Er farin að gæla óvenju mikið við tilhugsunina um bakpokaferðalag til Asíu/Ástralíu... Svo stend ég mig mjög oft að því þessa dagana að hugsa um að gera bara hluti sem mér finnast skemmtilegir, er ekki lífið of stutt til að gera eitthvað sem manni þykir ekki skemmtilegt? Æ ég veit ekki... held bara að ég sé ekki tilbúin í að vera í háskóla og mig langar að ferðast svo mikið áður en ég fer eitthvað að festa mig. Ræræræ... Allavega, kannski ég fari að verða duglegri við að blogga fyrst að netið er komið heim. Nenni ekki að skrifa meir, SÍ JA!!!! Drekinn (smá Svínasúpuhúmor)
»
23.08.2007 14:16:13 / snorkstelpa
Jahá ég er jafnvel að pæla í að fara að byrja að blogga aftur, svei mér þá! Eins og flestir vita, vorum við Stína með heimasíðuna www.kiwistelpur.bloggar.is á meðan við vorum úti, þessvegna bloggaði ég ekkert hér...  Ég er semsagt komin heim, lenti 13.júní og var bara að vinna á Kumbó í sumar... Stoppuðum á leiðinni heim í Thailandi og Malasíu, sem var ... lífsreynsla, orðum það þannig! Við vorum reyndar mestan tímann í Thailandi, sem var dásamlegt. Fyrsta stoppið var í Hat Yai, og gistum á geðveikt fancy hóteli því við vorum eitthvað litlar í okkur og þorðum ekki öðru  Svo fórum við á fallegasta stað á jarðríki, Koh Phi Phi (Phi Phi Islands), ji ég hef aldrei séð jafnfallegan stað. The Beach var tekin upp þar, þannig að ef þið hafið séð hana þá getiði ímyndað ykkur landslagið. Skjannahvítar strendur með pálmatrjám og tærum sjó... Úff ég fæ bara gæsahúð af að hugsa um þetta Vorum á mjöög flottu hóteli (við erum náttúrulega svo ríkar) með sundlaug og spes ommelettu-þjóni sem ég kallaði Höllu Berja því hún var alveg eins og Halle Berry ! Síðan fórum við til Phuket, sem er þekktari ferðamannastaður en ekki nærri því jafnfagur og Phi Phi. Við vorum semsagt á aðal Tsunami stöðunum, þar sem flóðbylgjurnar skullu um jólin hva, 2005? Síðan, 3 vikum seinna, fórum við heim og hittum ykkur öll ! Ég og Ása Ninna fórum strax í að leita að íbúð og fyrir einskæra tilviljun fengum við mjög fína íbúð á Smiðjustíg 4 (beint á móti Ellefunni), semsagt alveg niðrí bæ. Við erum að standsetja hana aðeins, mála og parketleggja og svona en við lofum að hún verður komin í lag fyrir 8.september því þá er innflóin okkar  Talandi um það, innflutningspartýið verður laugardaginn 8.sept. og þemað verður ARTY-FARTY! Okkur fannst það upplagt þar sem að við búum nú einusinni í 101 ! Ahh heyrðu ég gleymdi að minnast á þjóðhátíð! Vá þetta var besta þjóðhátíð sem ég hef farið á, að undanskildri minni fyrstu (2002). Gistingin okkar beilaði, þannig að við vorum bara í litlu kúlutjaldi niðrí dal og vá það er miiiklu skemmtilegra að vera í dalnum! Hún var bara yndisleg í alla staði og bara, já, takk allir sem gerðu hana svona frábæra!  Jess, ég er farin að vinna hjá mömmu, í Fair Trade búðinni (Laugavegi 20b), það er yndisleg búð sem þið VERÐIÐ að lesa um á www.fairtradebudin.is Endilega komiði og kíkjið á mig! Jamm, svo er ég núna að fara að kaupa mér tölvu fyrir veturinn, þannig að ef einhver sem KANN á tölvur nennir með mér að versla, þá gefðu þig fram!  Jæja er þetta ekki bara ágætt?! Miðað við það að ég hef ekki bloggað síðan í janúar! Ég kveð að sinni
»
04.01.2007 23:15:02 / snorkstelpa
Úff vó ég ætla að fara halda þessari síðu aðeins meira uppi því ég
hef verið beðin um að blogga á meðan ég er úti... Ég er semsagt,
ásamt Kristínu, að flytjast búferlum til Nýja-Sjálands til að vinna
á kiwi búgarði... Þ.e.a.s. við að tína kiwi!  Við yfirgefum
landið þann 4.febrúar nk. en komum ekki á áfangastað fyrren 12.feb
þar sem við ætlum að heilsa uppá NÁGRANNA okkar kæru!!!!! JEIIII
sjitt verður gaman að hitta þá maður! Ég hætti í Póstinum 22.des.
og fer því janúar bara í stúss og vesen fyrir ferðina. Þarf t.d. að
selja bílinn minn... EF EINHVER VILL KAUPA HEIÐBLÁA HONDU CIVIC
'94, ENDILEGA HAFÐU SAMBAND!! Jámm og bankavesenast og fara í
sprautur og til tannlæknis og fá atvinnuleyfi og fleira og fleira
og fleira... :/ Já afmælið mitt hélt ég svo þann 29.des (daginn
eftir afmælið) á Pravda og það var bara svaka stuð, ýmsir stigu á
stokk og þar má helst nefna TAB 22 og hann Jónsa minn í Svörtum...
Þetta var æðislegt kvöld og ég þakka bara öllum sem að því stóðu!
:* Lengra verður bloggið ekki að þessu sinni, þakka fyrir og góða
nótt!
»
23.02.2006 09:04:52 / snorkstelpa
Sæl,
jæja nú verður maður víst að skrifa eitthvað svo
að fólk slaki aðeins á...
Já ég veit samt ekkert hvað ég á að segja... Ég
er að fara að útskrifast núna 27.maí nk. og fer svo í
útskriftarferð 1.júní til Búlgaríu... Það er kaffihúsakvöld í
kvöld, svaka stemmning, uppistandari og læti... Eh.. Ég verð
líklegast í bænum alla helgina á háskólakynningum og svo auðvitað
djamm um kvöldið. Háskólinn í Reykjavík kom samt hingað í vikunni
að kynna og mér leist bara ansi vel á lögfræðina þar, gæti alveg
hugsað mér að taka hana þar með áherslu á mannúðarmál. En eins og
þið vitið fer ég ekki í háskóla fyrren á næsta ári vonandi, því ég
er á leiðinni til France! En mig langar samt eiginlega ennþá
langmest í HHS deildina á Bifröst... Þetta kemur allt í ljós bara.
Aldrei að skipuleggja of langt fram í tímann! (Nema maður heiti
Guðrún, eða sé þýskur) Aha... jú svo er auðvitað þjóðhátíð í sumar,
ég hef ákveðið þessu sinni að sleppa minni ástkæru íbúð vegna
peningaskorts, en það er ekkert vandamál því Ása ætlar að redda mér
hjá einhverjum frænda sínum eða eitthvað.
Jæja er þetta ekki komið nóg?! Kv.
»
22.12.2005 12:10:10 / snorkstelpa
Hæ hó! Jæja hvað syngur í fólki? Eruði farin að hlakka til
afmælisins míns?? SEM BY THE WAY ER
28.DES!!!! Og ég býst við ca.70 sms-um frá
ykkur! Já ég hélt það reyndar seinustu helgi, það var mjög fínt,
Skímó ball seinna um kvöldið sem var auðvitað bara snilld enda
piltarnir á heimaslóðum.. Ég er í vinnunni núna og hef því einmitt
góðan tíma til að blogga smá! Hmm ég keypti fyrstu jólagjafirnar í
gær en ég hefði gert það seinna hefði ekki legið á þeim... Versla
nebbla yfirleitt ekki fyrren á þorláksmessukvöld. Já en það lá á
sumum pökkunum því hann Guðfinnur verður nefnilega fyrir vestan um
jólin.. Díses hvað þetta verða leiðinleg jól, við verðum 4 heima!
Höfum aldrei verið svona fá... En sem betur fer hef ég Stelluna
mína og litlu krúsíin, við förum einmitt til þeirra eftir
pakkaupptöku á aðfangadagskvöld. Þetta verða samt frekar leiðinleg
jól, stundum þoli ég jafnvel ekki jólin.. Það er svo áberandi svona
kærustupör og svona, maður getur orðið frekar lónlí :/ En nóg um
það, það þýðir ekkert að væla og á næstu önn hef ég voða lítinn
tíma til þess, SEINASTA ÖNNIN MÍN!!! :/ Nóg að læra, svo fer ég
á fullt í jazzinn (vonandi með Guddu), Ölsala, ólétta (hjá mömmu,
ekki mér!) og svo tekur nóttla líka á að standast skyldurnar sem
fylgja 4.bekk! En djöfullinn ég þarf víst að gera svona
Memory moments eitthvað: (BÆ)
Commentaðu nafninu þínu og..
1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér eikkað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um
þig
7. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt..
You MUST
»
17.10.2005 15:30:37 / snorkstelpa
Jæja tími til kominn að segja eitthvað... Lífið gengur nú bara
óvenjuvel, allavega miðað við síðustu haust. Var í bænum um
helgina, með Guðrúnu og Kristínu, það var bara ágætt.. Skelltum
aðeins í okkur á laugardaginn og ég og Guðrún fórum niðrí bæ en
SUMIR sofnuðu áður.... Það var geðveikt mikið af fólki niðrí bæ vá
ÆJI ÉG NENNI EKKI AÐ SKRIFA!!!!!!!! bæææ
»
21.09.2005 20:22:22 / snorkstelpa
Djöfullinn ég var búin að skrifa helling, svo ýtti ég á
staðfesta og þá datt allt út! Ég man ekki
einu sinni hvað ég var að segja... Ég er búin að fara til
Danmerkur... og í skólann... og í jarðarför...-Ég vil votta
Friðjóni virðingu mína. Eins og allir vita líklega, þá
lést hann sunnudaginn 5.september og hans verður sárt
saknað... Lífið heldur áfram og maður verður bara að horfa
alltaf á björtu hliðarnar... Jamm...En hvað segir fólk?
Hvernig gengur lífið hjá ykkur? Endilega tjá mér það í skoðununum.
Allt gengur ágætlega hjá mér, skólinn á mjög fullu og
4.bekkur er æðislegur, langbesti bekkurinn eiginlega nema kannski
fyrir utan 1.bekk. Pabbi gaf mér bíl á föstudaginn, eitthvað
surprise hjá honum. Hnakkablá Honda Civic árgerð 1994 en lítur
óvenjuvel út miðað við háan aldur! Það er alveg frábært að eiga
bíl, maður er ekki eins háður öðrum með að komast eitthvað og
svona... Jámm, ég veit ekki hvað skal segja. Ég fattaði í gær að ég
þarf að fara að drífa mig að eignast börn ef ég ætla ekki að verða
of gömul þegar ég eignast seinasta. Mig langar nefnilega að
eignast svona 5-7 börn og ég vil ekki eignast þau öll með bara árs
millibili þannig að ég þarf bara að fara að drífa mig! Uss
erfitt að vera kvenmaður stundum... Það er heldur ekkert að hjálpa
að það eiga allir börn í kringum mig eða eru óléttar, erum við
orðin svona gömul krakkar? Það var sko bara upplifun að hitta gamla
bekkinn um daginn, hittumst daginn fyrir jarðaförina og þá kom í
ljós að það voru allir trúlofaðir, áttu hús, bíl og krakka/á
leiðinni!!!??! Æ æ æ hvað er fólk að flýta sér? Jæja á maður að
fara að horfa á "Druslur dressaðar upp"? Ég held það...
Bæjó
»
15.08.2005 22:35:23 / snorkstelpa
Hæ!
Langt síðan ég skrifaði... En já allavega, sumarið var bara
alveg ágætt, ég var reyndar að vinna nánast allar helgar
en það var þrátt fyrir það bara fínt. Og núna kemur svo besti
parturinn af sumrinu; skólinn! Fokk hvað ég hlakka til
en kvíði samt því ég er að fara á LOKAÁRIÐ!!!
Aaaaaahhh skrítið... Vá ég fer að fara á breytingaskeiðið, ég
er orðin svo gömul Uss jæja þýðir ekki að væla... Ekki
skemmir það samt fyrir að ég og Guðrún erum að fara til
Köbenhavn á fimmtudaginn að ná í Svövuna okkar sem við erum
svo sárlega búnar að sakna í sumar. Þetta verður 5 daga
helgarferð... Tilgangurinn er að ná í Svövu svo hún komi í
skólann, drekka danskt öl, versla, TÍVOLÍ, Rådhuspladsen,
danskar pulsur, tattú?, danskir strákar... Og margt fleira,
t.d. þurfum við að fara í Lundby í bæinn hennar Svövu og fara
í afmæli þar og svo eigum við víst að gista hjá e-jum dönskum
pulsum, ég gisti hjá "Kenneth" ?? Hehe sjitt hvað þetta
verður gaman.. Bara tre unge piger að missa sig í gömlu
höfuðborginni.. En já hvað á ég að segja með sumarið
sem er að líða?! Umm jú ég fór sko til Eyja, það bregst
auðvitað aldrei.. Ég, Guðrún og Sigga vorum saman í íbúð og
það var mjög fínt, nema þegar Sigga var að hella Bailey's í
hárið á sér! Haha... Já ég nenni ekki að tala um Eyjar núna,
ég geri það í næstu færslu og þá þáá get ég sagt frá
"skemmtilegu" sögunni sem ég lenti í !! Sem Guðrún og
ákveðinn aðili eru ábyggilega enn að hlæja að! Í næstu færslu
sko... Hey ég fór í bíó á föstudaginn og mætti ég ekki
bara Sylvíu Nótt, fokk hvað ég dýrka hana! Ég fór bara
að hlæja þegar ég sá hana, samt var hún ekki í hlutverkinu
sko.. "Skiluru".. ahaha hún er æði... En já Guðrún bauð mér á
Lækjarbrekku á föstudaginn, hún átti sko afmæli og foreldrar
hennar voru eitthvað sorrí yfir að vera á Ibiza á
afmælisdaginn þannig að þau splæstu Djöfull var góður
ísinn...mmm... Mér fannst ég samt ekki passa þarna
einhvernveginn, soooldið snobb í gangi og ég og Gudda vorum
þvílíkt að reyna að vera dannaðar og ekki segja
aulabrandara... Það gekk illa.. Hey en heyrðuði um
þorskinn sem fór í Rúmfatalagerinn? Hann keypti sér
sardínu!!!! hahahahahaha... (Það er bók uppí vinnu sem
heitir "Glens og grín" sem Þróttó (ÍKÍ) gaf út 1 9 9 og
þið megið búast við mörgum bröndurum hér eftir!! Svo voru
það fornleifagæsirnar sem fundu fornan grafreit, þá sagði
einn spekingurinn: "Þetta hljóta að hafa verið endur fyrir
löngu!" AHAHAHAHAHAHAHA vá bara snilld... Já ég og
Hildur Sel (eins og mamma kallar hana) (gæti styst sem
H-Sel?) fórum á koju á laugardaginn og vorum svona líka
agalega léttar og fínar, vorum að drekka niðri hjá Guðfinni
og Jóhönnu og þeim fannst við ekkert alltof fyndnar með
brandarana.. Ekki heldur Gumma Gísla og Bjarna Gunnari... En
jæja, gott að maður skemmtir sjálfum sér og ég efast ekki um
það að þegar ég kem á elsku Vatnið mitt þá á fólk eftir að
hlæja að þessum bröndurum!"#&/%$ Úff jæja ég er farin að
röfla, en ég vil skrifa meira þegar ég kem heim.. Kem semsagt
heim á mánudagskvöldið og flyt uppeftir á
þriðjudaginn...ííííí tilhlökkun.... Heyrðu
ókei bæ
»
29.06.2005 15:04:14 / snorkstelpa
Hæ! Jæja
loksins nenni ég að vera í tölvu, það gerist voða sjaldan. En
jæja já það er mikið í fréttum, Stella er flutt á Eyrarbakka
frá Danmörku, keypti Túngötu 41. Og þau eru búin að búa hér
hjá okkur í 2 vikur á meðan þau eru að koma húsinu í stand.
Já Stella er frænka mín sem bjó á Eyrarbakka í den og er nú
komin aftur og kemur meirasegja með mér á Laugarvatn í haust!
Úff sjitt lokaárið... Andskoti er maður nú orðinn gamall! Ha!
Ég er bara svona að renna hratt yfir það sem er búið að
gerast.. Ég er búin að vera að vinna á leikskólanum hérna en
hann verður í sumarfríi í júlí þannig að á meðan vinn ég á
Kumbó með Hildunum tveim... Ummm já ég fór vestur á
sjómannadaginn, sem var auðvitað endalaust gaman. Ég og Tinna
brunuðum vestur og skemmtum okkur svona líka vel! Já svo er
ég AÐ SJÁLFSÖGÐU að fara á Þjóðhátíð í Eyjum, annað er
auðvitað bara skömm! Ég ákvað reyndar að þetta árið færi ég
ekki fyrren á föstudeginum (ég hef alltaf farið á fimmtudegi)
því ég bara nenni ekki þessu Húkkaraballadæmi, það er bara
rugl. Ég og Guðrún verðum í sömu íbúð og í fyrra hjá henni
Svanhildi palla, íbúðin er rétt hjá Lundanum minnir
mig, þannig að þeir sem koma til Eyja verða að kíkja á
okkur þar! Og kannski fá að stelast í sturtu! Ahhhh 30 dagar!
Djöfull ætla ég að eiga yndislega þjóðhátíð í ár því í fyrra
var hún... bara alls ekki nógu góð, fannst mér allavega.
Verst að við komum ekki bílnum í bátinn, allt löngu uppselt..
En þá eru það bara bekkjarbílarnir! Aaaahh þetta verður
frábært... Svo hitar maður upp fyrir Eyjar á Bubbu 2005, hún
er þarnæstu helgi á sama stað og í fyrra.. Ég á reyndar að
vera að vinna en maður getur nú svo sem kíkt, enda er ég bara
á kvöldvöktum... Jamm jazzinn gengur líka vel bara, ég er
alltaf jafn hrifin af henni Dísu elskunni! (Guðrún skilur)
Aaa ég gleymdi líka að ég og Guðrún erum að fara í langa
helgarferð til Köben í ágúst til að hitta Svövu kelluna, en
hún er að vinna í DK á SVEPPABÝLI!! Hún slítur sig aldrei frá
þessum bölvuðu sveppum...Já við ætlum semsagt að kíkja á
hana, vera í Köben og fara í Tívolíið og á Strikið og versla
og drekkkkkkkkka bjór og vera danskar og sætar! Og etv. ná
sér í en dansk dreng, hver veit.. og flytja hann til
Íslands...aaaahh... Jæja svo á hún Hildur Seljan afmæli á
morgun og hún bauð mér og Sigrúnu í mat og meir á morgun, sem
verður voða næs. Ummm hvað er meira að frétta? Jú ég er með
mjööög stórar fréttir sem ég get því miður ekki sagt fyrren
seinna í sumar eða kannski í haust... Haha nú engist
Kristín!! Hvað get ég meira sagt... Jú Alla og Eyvi
komu í heimsókn um daginn og fóru heim með kettling, þannig
að samband þeirra verður alltaf alvarlegra og alvarlegra! Jú
heyrðu ég og Stella kíktum á jónsmessuna hérna á bakkanum,
það er alltaf eitthvað svaka dæmi.. Það var vægast sagt
hundleiðinlegt, ég sá bara selfyssinga og Þorlákshafninga og
jú ég sá líka Hebba í Skímó. Æ þetta hefði örugglega verið
fínt ef maður hefði verið að drekka en ég var að fara á
morgunvakt daginn eftir þannig að ég var ekki að nenna
því. Heyrðu þegar ég hugsa útí það, þá er ég ekki búin að
drekka síðan fyrir vestan! Það er alveg næstum því
mánuður... Já jæja ég ætla að fara að gera
eitthvað... Blessó
»
07.05.2005 19:30:08 / snorkstelpa
Fyrir
ykkur sem söknuðuð skrifta minna, þá getið þið gert ykkur
glaðan dag og eflaust mun sólskinið leika um ykkur (alla vega
í hugum ykkar)...því að...
Bríet
is back!!!
Í því
tilefni ákvað ég að slá saman í eina stöku eða
svo...
Á
nýjan leik
Mætt
er ég með mjög góðan pistil,
mætan
og mikinn sem allir sjá.
Ég
er með kvef og eymsli í ristil,
en
hræðist mig ei og verið mér hjá.
Sagan
um Sailesh
Nú
margt hefur á daga mína drifið, ég fór með Hildi frábæru
Seljan, Guðrúnu Ruslönu Hilmarsdóttur og Svövu sveppatínara
Ragnarsdóttur. Þetta var alveg magnað, ég stóðst freistinguna
um að fara upp á svið. Jájájá...Svo fórum við á einn af
mínum uppáhaldsstöðum, Opus sjitt... bara 14 ára
smápíkur og innflytjendur...
"Margt
um manninn" á miðvikudagskveldi
Ég
fór í bæinn með Kristínu a.k.a DJ Ztínó Kriz, Guðrúnu a.k.a
Gudda dans og Svövu a.k.a Svavta Transmaster Funky. Það var
mjög gaman, við fórum niður í miðbæ höfuðborgarinnar en því
miður var stemmingin á landanum ekki góð og því var farið í
íbúðina í Skuggahverfinu sem mamma og pabbi Guddu dans eiga.
Þar kúrðum við með booztið okkar og átum snigla og rækjur ala
Chef Martino.
Pellar
á Players!
Á
fimmtudeginum var á Players og síðan farið í bíó á
The Hitchikers Guide to the Galaxy, mjög góð og með voru í
för körfuboltastrákurinn Jón Gunnar og módelið Sverrir, kátt
var á hjalla og keyrt upp á Laugarvatn að bíói loknu. Höfum
ekki fleiri orð um það.
Fjörugur
föstudagur
Með 2
tíma svefn að baki vaknaði ég upp og fór í enskupróf! Ég var
mjög rjóð í kinnum og heitt var úti þennan dag þrátt fyrir
gustinn sem lék um varir mínar og hár. Ég fór síðan heim í
algjört geim, nei ég fór nú bara heim um kvöldið hitti ég
mína frábæru og fjölhæfu vinkonu Hildi Seljan, við tókum
nokkra rúnta en svo var tími komin á rúmið hjá mér og þurfti
ég að bæta upp fyrir svefnmissi síðastliðna
nótt!
Leiðinlegur
laugardagur
Vaknaði
um 14... fór þá með Hildi Seljan í Bónus (nei, ég sá ekki
Jóhannes!!!), glöð í bragði og keypti mér 3 popppoka já því
það er svo gott að narta í poppið á laugardagskveldi. En núna
er ég að læra tölfræði svo ég ætla að halda því
áfram.
Með
bros á vör og von um góð viðbrögð,
ykkar
einlægust B
rí
et
!
»
11.03.2005 12:01:48 / snorkstelpa
Jæja hæ hó, ákvað að skella mér
í skriftir! Það er nú reyndar ekki mikið búið að gerast
svosem, nema kannski tvær Pakkhúsferðir sem voru alveg í
besta lagi. Fyrri ferðin var algjör snilld, ég talaði dönsku
hele tiden við kallinn hennar Ellu.. en já þetta var frábært
kvöld og ég mæli eindregið með fimmtudagsfylleríum á
Selfossi! Nema að ég komst ekki í skólann daginn eftir vegna
veikinda. En seinni ferðin var nú bara í gær,
ákváðum það semsagt í algjörum flýti.. Ég og Svava vorum
semsagt alla vikuna að reyna við "Danina" (að við héldum)
verkamennina sem koma í mat hingað, loksins töluðu þeir við
okkur í gær og vildu koma með okkur á djammið (það var þá sem
við föttuðum að þeir væru bara alls ekki Danir heldur
ÞJÓÐVERJAR). Og þrátt fyrir sár vonbrigði mín um þjóðerni
þeirra, ákváðum við að skella okkur bara á Pakkarann.. Annar
gaurinn var reyndar sofandi þannig að Sebastian kom bara einn
með okkur, en engu að síður var stuð. Það var hörkutjútt
þarna, Guðrún datt m.a. (eitthvað nýtt!), ég ætlaði að lemja
eina MELLU, María fann sér ÍKÍ gaur, Guðrún varð
blind (þ.e. hún var orðin svo pirruð á barnum að
enginn afgreiddi sig að hún sagðist halda vera blind) hún
meinti ósýnileg... Svava kom með gullkorn allra gullkorna;
"I'm the only one in my class who always gets laid
(late)!" Hún var semsagt að meina að hún væri sú eina sem
fengi alltaf seint í kladdann á morgnana. Svo sagði hún líka
" Yeah I slept over me tomorning" , skilji þeir sem vilja! En
sorgarfréttir, Alexander has left the building.. Við
gáfum Sigga vin Öllu hann en við vitum að hann mun sinna
honum mun betur en við gátum nokkurn tíma.. svo ætlaði Svava
líka að borða hann. Fyrir þá sem ekki vita þá er Alexander
aka Litli-Kjúlli, páskaunginn okkar sem við gáfumst
uppá. Jamm.. já morguninn í morgun var líka ágætur, ég gisti
hjá Sebastian, það var alveg hæfilega vandræðalegt... Nú get
ég aldrei farið í mötuneytið aftur! Stelpur: matarbakkar
takk! Jájá við skulum ekki ræða þetta frekar, þetta var nógu
andskoti neyðarlegt í morgun að mæta í skólann- það var bara
klappað fyrir manni og læti. Jáa, Guðfinnur og Jóhanna fóru
út í gær, ætla að vera í Nýja-Sjálandi í 5 vikur.. eru núna í
London.. En Guðfinnur var að segja mér að Velvet Revolver
væru að koma til landsins í sumar, djöfull ætla ég að mæta!
Heyrðu já svo er það Ídolið í kvöld, Hilla Sella kemur
til mín og við ætlum bara að hafa það kósý yfir sjónvarpinu,
enda er ég uppgefin eftir þessa helvítis viku. Jæja ég þarf
að fara að ná í þvottinn minn, smell ya later
»
21.02.2005 11:25:57 / snorkstelpa
Ég er loksins komin í tölvu... nenni ekki að vera í tölvum
annars en er í óvæntri eyðu því hún Gríma gekk útúr tíma. Hmm voða
lítið að frétta eitthvað.. man ekki hvað ég skrifaði seinast.. en
um daginn fórum ég og Svava á Pravda í e-ð partý og það var bara
mjög fínt. Gistum í bæjaríbúðinni þeirra sveppa.. Já vorum þar
alveg frameftir morgni og ætluðum síðan að rölta heim en þá var
okkur boðið far í LIMMA! Svo að við rúntuðum aðeins á honum og
fórum síðan heim, en það er skemmtilegt að segja frá því að þetta
var mitt fyrsta skipti í limma... Jahá...Hmmm svo var ég í vikufríi
vegna Ásdísar og Freyju og ég náði að vera með þeim seinustu vikuna
áður en þau fóru út en það var mjöööög erfitt að kveðja.
Hummsírummsí...ég gerði voða lítið um helgina, var í bænum alla
dagana eiginlega.. hey já ég fékk vinnu á Grand Hótel þannig að
vonandi eyðir maður helgunum í það. Svo er hún Sara mörgæs bara
komin í fegurðarkeppni! Já Ungfrú Vesturland, ég og Kristín ætlum á
keppnina og svo Sálarball eftirá, það verður örugglega svaka stuð,
ég vona að Sara geri mér þá ánægju að fljúga á hausinn í bikiníinu!
Ahhh það væri frábært.. Við erum svo að fara í bæinn á
eftir, skvísurnar, að erindast.. finna árshátíðarkjól og skipta
dávaldsmiðum o.fl. og það verður ágætt að komast aðeins úr
drullunni í sveitinni yfir á malbikið! Djöfull hata ég annars
reykvíkinga! Helvítis óuppalið pakk.. Nei ég ætla ekki að byrja að
tjá mig um andskotans höfuðborgina, þá missi ég mig alveg. En ég er
að pæla að fara til Nýja Sjálands í sumar ef ég verð komin m e-n
pening
»
26.01.2005 16:38:54 / snorkstelpa
Hæ, jæja ég ætla að reyna að skrifa aðeins
meira núna. Hmm ég er örlítið stressuð núna, er að fara að
flytja framboðsræðu í kvöld fyrir framan alla... Úff jæja það
hlýtur að reddast, í versta falli dett ég af sviðinu eða
eitthvað. Held samt að ég sé ekki að fara að vinna þetta,
býst við að fleiri kjósi Sæla. En það er svosem allí lagi, þá
þarf ég allavega ekki að vera edrú í heilt ár (sérstaklega
ekki á Bubbu)... Maður á alltaf að líta á björtu hliðarnar!
Hmm það er svo margt búið að gerast síðan ég skrifaði seinast
almennilega... Já ég fór á Hellu um daginn í afmælið hjá Unni
og fleirum Hellingum, þetta var alveg frábært afmæli... ég og
Alla tókum einmitt nokkrar rassaferðir niður hólinn! Haha
djöfull var það gaman! Hmmm já svo hélt ég jól og fékk m.a.
nýjan síma. Svo eyddi ég áramótunum vestur á Patró, sem var
alveg fínt. Já svo fór ég á fullt í skólann bara og er þar
enn. En núna er margt breytt, ég er t.d. orðin ein í herbergi
því hún Unnsa skunnsa er farin til Guatemala að hossast í
e-jum vörubíl! Jájá hún verður þar alveg fram í sumar, þannig
að þangað til verður maður að komast af án ýmissa nauðsynja,
eins og t.d. poppskeljap***pi og samtala á klóstinu... Ahh en
góðir dagar framundan, kosningar og aðalfundur á
morgun, stjórnarskiptaball á laugardaginn og svo verður
sunnudagurinn svakalegur.. Við pigerne ætlum að skella
nokkrum rúmum saman og liggja uppí rúmi aaaaallan daginn og
éta nammi og horfa á vídjó.. Svona til að jafna okkur á
ballinu. AAA svo er Kjúlli líka að koma!! (ríkur
kjúklingamaður að austan sem Alla er að koma mér saman
við) Það ætti að verða skrautlegt, lessan sjálf að koma fólki
saman... haha... HAHA dansinn! haha GUðrún!! Jæja
heyrðu ég þarf að fara að semja ræðuna og hafa mig
til..
Blessó
»
24.01.2005 19:27:51 / snorkstelpa
Jææææja... Ég hef bara ekki nennt
að vera það lengi í tölvu að ég hafi getað skrifað. Hef
reyndar engan tíma núna, er að fara á samlestur á leikritinu
okkar. Heyrðu svo er ég bara komin á fullt, er að bjóða mig
fram í stjórn Mímis, er orðin ölsölustýra, er í
ritnefnd Mímisbrunns og svo er nóttla leikritið.. Þannig að
mér ætti ekki að leiðast! En já ég skrifa meira á morgun
kannski, verð eiginlega að drífa mig...
veit eiginlega ekki afhverju ég var að byrja á þessu en
jæja
»
17.12.2004 14:23:32 / snorkstelpa
Jæja pípúl... Loksins kemst ég í tölvu.. ekki það
að ég hafi saknað þess. Já jæja ég fór í jólafrí núna á
miðvikudaginn eftir seinasta prófið, sem gekk svona lala
bara. Connie hjálpaði eitthvað svona.. Ja så ég er alveg að
fíla það að vera heima með ástardúllunni minni henni Freyju,
maður hlakkar alveg til að vakna og sjá hana
Hún er komin með svo margar tennur að
maður bráðnar alveg við að sjá hana brosa! Svo skemmtum við
okkur ágætlega í morgun við að henda niður jólasveinum og
dagatölum. Eeen ég fæ ekki að sjá hana fyrren á sunnudag,
jafnvel mánudag því hele familien er að fara vestur á
Patreksfjörð að kynna litlu fyrir íslenskum ættingjum. Það er
reyndar ekki svo slæmt, þó mig hafi langað með, því ég fæ að
halda partý á meðan... Afmælispartý
Túngötu 64 á Eyrarbakka í
kvöld!!!
Eins gott að allir mæti... Jei ég fæ pakka!! Ég er
að vinna núna í bænum en svo förum við Guðrún í heimsókn til Jóa
Fel eða eitthvað að finna afmælisköku og síðan brunum við austur að
elda með Kristínu og Svövu.. Það verður fínt.. Svo kíkir maður
kannski aðeins á skjáeinn í kvöld að horfa á Odd keppa í Herra
Íslandi, alveg pottþétt að hann vinnur! Já... úff nenni
ekki að vera hérna, kann ekki rassgat á neitt hérna og allir
að spurja um eitthvað bull. Jarðvegsþjöppur??!? Kommon... Ah ég
gleymdi næstum að klára helgina, ég og Guðrún erum að fara á ekta
Helludjamm.. Unnur býður til veislu á Kristjáni X, bæði svona
afmælis og kveðjupartý held ég. Maður verður nú að kíkja þangað,
alltaf stuð á Hellu! Mmmm svo verður nú aldeilis
gaman að koma þunn heim á sunnudaginn og fara að taka til!!
Jæja ég er farin að þykjast vinna. Endilega kíkið í
kveld og látið gleðina taka völdin... ahhhh mig langar á
þjóðhátíð!! Bara alltíeinu! ,,og á morgun mun ég vakna upp' í
Vestmann'eyjum" lalala fullum dal af fínum peyjum og fallegustu
konum heeeeims!" good
times...
»
Síður: 1 2 3
|
|